Jump to Content

Þetta er hraðvirkara, öruggara og einfaldara. Skráðu þig inn með Google með einum smelli.

Notaðu Google-reikninginn þinn til að stofna reikninga og skrá þig inn á öruggari og einfaldari hátt – þannig eyðirðu minni tíma í vesen með notendanöfn og aðgangsorð og meiri tíma í forrit og vefsvæði sem þér líkar við.

Bendill er yfir hnappinum „Skrá inn með Google“ á fartölvuskjá. Tákn fyrir forrit snúast á skjánum. Við hlið fartölvunnar er snjalltæki og á skjá þess er einnig hnappurinn „Skrá inn með Google“.
  • Snurðulausar innskráningar

    Stofnaðu nýja reikninga eða skráðu þig inn í eftirlætisforritin og -vefsvæðin á einfaldan og öruggan hátt, án þess að nota notendanöfn og aðgangsorð.

  • Notaðu hvaða tæki sem er

    Nýttu þér snurðulausa og kunnuglega innskráningaraðferð í öllum vöfrum og tækjum sem þú notar, þar á meðal iOS og Android.

  • Stjórnaðu tengingunum þínum

    Hafðu góða stjórn á forritunum og vefsvæðunum þínum með öruggri samnýtingu reikningsupplýsinga, t.d. nafni, netfangi og prófílmynd, og aðgangsstjórnun að Google-forritum á borð við Drive.

  • Meira öryggi með Google

    Segðu bless við endurnýtt aðgangsorð og ótraustar innskráningar. Með því að nota Google-reikninginn til öruggrar innskráningar þarftu að treysta færri forritum og vefsvæðum fyrir aðgangsorðunum þínum – þannig eykst öryggi gagnanna þinna.

Svona notarðu „Skrá inn með Google“

Auðveldur aðgangur í öllum tækjum að forritum og vefsvæðum sem þér líkar við – allt með Google-reikningnum

Smelltu á hnappinn „Skrá inn með Google“ í forritinu eða á vefsvæðinu

Veldu hvaða Google-reikning þú vilt nota

Ef þú ert að gera þetta í fyrsta sinn skaltu deila nafni, netfangi og prófílmynd af Google-reikningnum til að skrá þig inn í forritið eða þjónustuna
Sum forrit kunna að biðja um frekari upplýsingar, s.s. heimilisfang eða símanúmer, og þeim geturðu stjórnað hvenær sem er í stillingum Google-reikningsins.

Halda áfram í forrit eða vefsvæði

Allt er klárt, innskráning tókst!
Næst geturðu innskráð þig á einfaldan hátt með sama Google-reikningnum

Tæki birtist á innskráningarskjámyndinni. Undir reitunum fyrir notandanafn og aðgangsorð er að finna valkostina „Stofna nýjan reikning“ og „Skrá inn með Google“. Hnappurinn „Skrá inn með Google“ stækkar og hverfur skyndilega af skjánum. Bendill smellir á hnappinn.
Sprettigluggi fyllir út í skjá tækisins. Hann hvetur notandann til að velja Google-reikning til að halda áfram í forritið eða velja annan reikning. Bendillinn velur reikning sem á að nota.
Sprettiglugginn breytist og hvetur notandann til að leyfa Google að skrá sig inn í forritið. Bendillinn smellir á hnappinn „Halda áfram“. Sprettiglugginn lokast og skjámyndin sýnir forrit að hlaðast.

Öruggari innskráning með öryggisráðstöfunum frá Google

  • Sjálfgefnar öryggisstillingar

    Þú átt skilið að geta notað hraðvirka og örugga innskráningu. „Skrá inn með Google“ dregur úr fjölda staða þar sem gögnin þín eru vistuð á netinu og ver þig þannig gegn öryggisbrotum hjá þriðju aðilum.

  • Þú ræður för

    Stjórnaðu því hvaða upplýsingum þú velur að deila með hverju forriti og vefsvæði þriðja aðila og uppfærðu stillingar hvenær sem er á Google-reikningnum.

  • Innbyggð persónuvernd

    Google notar ekki upplýsingar eða virkni úr „Skrá inn með Google“ í tengslum við auglýsingar eða neinar aðrar Google-vörur. Við fylgjum ströngum reglum um gagnameðhöndlun með persónuvernd þína að leiðarljósi.

Eftirlætisforritin og -vefsvæðin eru innan seilingar